VERKTAKAVERK · ÚLFSSTAÐIR EHF.

Hafnargata 11 Seyðisfjörður

Verkefnið við Hafnargötu 11 á Seyðisfirði, einnig þekkt sem „Gamla ríkið“, felur í sér endurbyggingu á sögufrægu húsi sem geymir elstu verslunarinnréttingar á Íslandi.

Framkvæmdir hófust sumarið 2025 og er áætlað að þeim ljúki síðla árs 2026. Sérstaklega vakti athygli þegar húsið var híft af upprunalegum grunni og flutt yfir á nýjan grunn.

Verkefnið er einstakt dæmi um varðveislu menningararfs samhliða nútímavæðingu.

Myndir úr verkefninu

Smelltu á mynd til að sjá hana í stærri útgáfu. Smelltu á stóru myndina til að loka.