VERKTAKAVERK · ÚLFSSTAÐIR EHF.
Þorlákshöfn Landsnet
Verkefnið fólst í stækkun á tengivirki Landsnets við Þorlákshöfn, staðsett rétt utan við bæinn við Grindavíkurafleggjarann. Framkvæmdir stóðu yfir í um eitt ár og unnu að jafnaði um fimm manns við verkefnið.
Verkið gekk afar vel og lauk á haustmánuðum 2024. Um er að ræða mikilvæga uppbyggingu á innviðum raforkukerfisins á svæðinu.


